22. mars 2007 klukkan 00:09
Bjarni Rafn Kjartansson
05. júní 2006 klukkan 04:42
Jæja ekkert bloggað lengi.
Búið að vera mikið að gera. Byrjaður að vinna eins og brjálaður hjá Malarvinnslunni (Malló) er að gera hús í nýja hverfinu.
Þessi helgi sem var að líða var snilld og seinustu helgar hafa einnig verið mjög nettar.
Á föstudag fórum ég og Steinar í golf um kvöldið og þegar ég var búinn að tapa 9. holunni og þar af leiðandi veðmálinu sem við gerðum þurfti ég að splæsa á hann pulsu og kók. Eftir golfið fórum við niður í ís-mynd og ég keypti þetta. Svo sátum við bara inni að éta þetta og þá kom Kristó geðveikt skrítinn á svip inn og heilsaði okkur. Ég spáði ekkert meira í því og svo fórum við bara út í bíl. Agla, sem var að keyra Arnars bíl hafði lagt honum svona á móti mínum einhvernvegin og ég fór og talaði við Arnar. Svo fór ég og settist í minn bíl og sá Tedda liggjandi á gólfinu aftur í. Hann hljóp út og yfir í Arnars bíl. Svo ætlaði ég að fara að leggja í hann og þá ákvað Steinar eins ógeðslegur og hann er að prumpa. Allt í einu heyrist "HVER VAR AÐ PRUMPA?" hahaha þá hafði Friðjón troðið sér í skottið á mínum bíl. Ég ákvað samt að taka rúnt með hann í skottinu. Æj, þetta var mjög fyndið en samt sem áður svona 'had to be there' moment

En já, fyrr á föstudeginum fór ég að prufa bíla hjá Toyota hérna á Egilsstöðum. Mamma hringdi í mig og sagði mér að koma ..svo mætti ég bara þarna og allt í einu lét hún mig hafa 2 miða á ballið með í svörtum fötum. Snilld að fá miða á ball (4000$$$$) fyrir það að keyra glænýja og geðveikt netta bíla.
Svo var ballið á laugardeginum. Fór með Hauki, J0rgen, Steinari og Leif í bíl. Þetta var mjög gott ball og ég hitti fullt af fólki sem ég hafði ekki hitt lengi. M.a Þorstein frænda minn frá Eskifirði sem er að meikaða í USA. Eggert sem er að meikaða í Skotlandi og svona. Magnað!!
Allir að ná sér í Dr. Mizta and Mr. Handsome - Is it Love!
Bjarni Rafn Kjartansson
22. maí 2006 klukkan 05:53
Lífið er ósanngjarnt.
Þessi skrif eru tileinkuð þér Pétur.
Þú varst sá hressasti sem ég hef á ævi minni kynnst og ég mun aldrei gleyma þér.
Með fallega brosið og skemmtilega attitúdið, þú gast komið lífi í dautt herbergi bara með brosinu.
Ég mun aldrei gleyma þeim stundum sem við áttum saman, hvort sem það var í fótbolta, fifa eða öðru.
Ég mun sakna þín!

Þetta er eitthvað svo skrítið og óréttlátt, ég hitti þig fyrir helgina sem þú hvarfst og þá varstu hress og kátur og síðan ertu bara farinn

Ég vill votta samúð mína til ykkar, Jörgen, Sigga og fjölskylda. Það er hræðilegt þegar eitthvað svona gerist og móðir á aldrei að þurfa að sjá barn sinn deyja. Þið verðið bara að vera sterk og þið fáið allan minn stuðning.

Hvíldu í friði Pétur minn. Ég mun sakna þín og ég vona að við hittumst aftur eftir dauðan.
Bjarni Rafn Kjartansson
19. maí 2006 klukkan 22:52
Eins og flestir ættu að hafa tekið eftir þá er búið að vera að leita af góðum vini mínum, Pétri Kjerúlf.
Ég vaknaði kl 7 á mánudagsmorgun við það að
Dagur hringir í mig og biður mig að koma að leita. Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um og mætti upp í björgunarsveitarhús klukkutíma síðar. Það var mjög gott að sjá hversu margir voru tilbúnir að koma að leita af Pétri. Við fórum 14 manna hópur uppeftir. Þegar við komum byrjuðum við strax að leita og við löbbuðum í svona 3 tíma og ekkert fannst. Fórum aftur út í stjórnstöð og biðum eftir að fá næsta leitarsvæði. Það gekk allt á móti leitarfólkinu, þyrlan var bensínlaus og bíllinn sem átti að koma með bensínið fyrir þyrluna var bilaður á Akureyri.
Það voru hátt í 500 manns að leita og ekki ein einasta vísbending, sem var alveg stórfurðulegt.
Ég verð bara að segja að ég vona svo innilega að Pétur hafi fengið far eitthvert og sé á leiðinni hingað heim.
Á miðvikudagskvöld stóðu stelpurnar fyrir samkomu í Tjarnargarðinum þar sem mjög margir komu saman og létu kerti á tjörnina. Lýsa Pétri leiðina heim.
Eftir það var farið í kirkju þar sem var bænastund. Þetta var eitt af því erfiðasta sem ég hef gert.
Leit var hætt á miðvikudeginum vegna þess að fólk þurfti að komast í vinnu og stóð til að hún myndi halda áfram á morgun. Það sem ég hef heyrt í dag er að það sé búið að fresta henni fram á næsta fimmtudag vegna veðurs. Mjög slæmt

En ég vill bara segja það að hugur minn er allur hjá Jörgen, Siggu og fjölskyldu.
Höttur -
Leiknir í kvöld og hvet ég alla til að mæta og borga fúlgur og fjár inn þar sem allt rennur til fjölskyldu Péturs.
En já, ég lofa skemmtilegra bloggi næst!
Bjarni Rafn Kjartansson
15. maí 2006 klukkan 00:48
Jæja, eins og þið hafið tekið eftir er ég búinn að vera mjög duglegur að henda inn pistlum hérna!
Hef svosum ekki verið að gera mikið upp á síðkastið. Kláraði prófin á föst með því að rústa UPP103 prófi.
Er samt mjög ósáttur við Jón Inga að vera ekki búinn að láta mig fá einkunn úr félagsfræði en þetta kemur vonandi með kalda vatninu.
Föstudagurinn var magnaður. Daði kom og tók mig á rúntinn í nýja geðveika bílnum sínum og við sáum svona PRICELESS moment. Rútan við íþróttahús planið sem var föst með aftur endann í jörðinni og afturhjólin voru á lofti. Ef þið sáuð þetta ekki ---> svekkjandi

Fór svo og pantaði mér pizzu um kvöldmatarleytið þar sem mútter var í RVK og eitthvað og fór svo með hana til Daða og Stjána. Byrjaði á því að fá mér nokkra kalda og byrjaði svo á pizzunni. Ég komst að því mér til mikillar óánægju að það var GRÁÐOSTUR á pizzunni en ekki ostur og ananas eins og ég pantaði og þar sem allir sem voru hjá Daða voru í glasi þá gat enginn farið og skilað henni. -500 töffarastig @ Seilskeil.
Ballið var alveg ágætt, ég hafði reyndar áhyggjur af gítarleikaranum. Maðurinn var svo uppdópaður að hann gat varla staðið.
Maður kvöldsins var klárlega Huginn Rafn sem fór og káfaði á Páli Rósinkranz (og kyssti og knúsaði örugglega alla þarna inni) haha.
Síðan í gær tóku mínir menn sig til og urðu enskir bikarmeistarar. Þetta var orðið óþægilega tæpt þarna í endan. En kóngurinn Steven Gerrard reddaði þessu.

Um kvöldið fórum við nokkrir í fótbolta og eftir það fórum við heim til Steinars Loga þar sem við spiluðum Party og co fram eftir nóttu. Það kom svo fleira fólk,
Silla vinkona og svona eðal fólk.
Þegar klukkan var orðin 7 og allir orðnir skrautlegir og margar gullnar setningar eins og "Shake it Bjarni, shake it" voru komnar þá ákváðum ég, Steinar,
Arnar og Almar að fara út á sparkvöll í fótbolta. Við gerðum það og ákváðum að gera þetta með stíl og vorum allir berir að ofan.
Þetta var mögnuð helgi og næsta verður eflaust betri. Eurovision, einn heima og læti
Bjarni Rafn Kjartansson
08. maí 2006 klukkan 02:37
Jæja, 3. tilraun til að gera bloggsíðu. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu núna.
Ætla samt að geyma fyrstu alvöru bloggfærsluna þangað til á morgun þar sem mér finnst erfitt að ýta á takkana vegna þreytu og sársauka.
Þreyta = var að setja 1000 skóflur af sandi á öll greenin á golfvellinum.
Sársauki = Huginn ákvað þegar við vorum í bolta í dag að fara með löppina á mér eins og hann stæði ofan á Bin Laden og gæti sparkað og sparkað í smettið á honum.
Bæb
Ekkert smint, enginn koss :))))) ;*
Bjarni Rafn Kjartansson